
Auður
Auður kom út árið 2009. Þetta er fyrsta bókin í þríleiknum um landnámskonuna Auði djúpúðgu Ketilsdóttur.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Um bókina
Auður, dóttir víkingahöfðingjans Ketils flatnefs, vex up á Suðureyjum, ættstór og skapheit. Allt hennar fólk er heiðið en þegar hún kynnist Gilla munki laðast hún bæði að honum og boðskap hans um Hvítakrist. Fullveðja er Auður gefin Ólafi hvíta, konungi yfir Dyflinni á Írlandi. Samband þeirra er heitt en stormasamt og vináttan við Gilla verður henni að lokum dýrkeypt.
Auður djúpúðga er í hópi þekktustu landnema Íslands. Hér er þroskasaga hennar sögð um leið og dregin er upp mynd af þeim róstusömu tímum þegar norrænir menn lögðu undir sig eyjarnar við Skotland og herjuðu í Vesturhafi, háðu jafnvel blóðuga bardaga innbyrðis.
Vilborg Davíðsdóttir er þaulkunnug mannlífi sögutímans og staðháttum á Suðureyjum og Írlandi. Miðaldir eru hennar kjörtími og Auður rís úr djúpi aldanna, sterk og heillandi kona.
Hér má heyra umfjöllun um bókina í þættinum Bók vikunnar á Rás 1 haustið 2016 og viðtal við Vilborgu.

dómar

Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið
Vilborg bregður upp skýrri og grípandi mynd af persónum sínum og því lífi sem þær lifðu: Lesandinn finnur lyktina af þeim, heyrir raddir þeirra, sér þær ljóslifandi…Vilborg er í innilegu sambandi við persónur sínar … stíll hennar er kjarnmikill, gjörsneyddur tilgerð sem stundum hendir höfunda á tímaflakki. Skemmtileg og innihaldsrík saga.

Þormóður Dagsson / Morgunblaðið
Á bak við skáldsöguna liggur mikil og metnaðarfull sagnfræðivinna sem skilar sér til lesandans í ljóslifandi myndum af menningu og staðháttum Bretlandseyja þessa tíma. … Sagan er vel uppbyggð, spennandi og fróðleg og heldur kirfilega í lesandann allt til enda.

Oddný Árnadóttir / Eyjan.is
Persónusköpun sögunnar er alveg frábær og þar liggur mesti styrkur höfundar. Auður djúpúðga sprettur lifandi fram, sjálfstæð, skapmikil og stolt kona sem lætur sé ekki allt fyrir brjósti brenna.

Maríanna Clara Lúthersdóttir / Miðjan.is
Hæst rís sagan í frásögnum af fæðingunum tveimur og brúðkaupi Auðar og Ólafs hvíta. Þar nær Vilborg að gera svo vel það sem hún gerir best – að vekja til lífsins löngu horfna fortíð og lýsa í smáatriðum án þess að lesandinn verði meðvitaður um upplýsingaflæðið því vitund sögunnar hverfur aldrei frá söguhetjunni og tilfinningum hennar.