Blóðug jörð

Blóðug jörð (2017) er síðasta bókin í þríleiknum um Auði djúpúðgu, konuna sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands, og um leið sjálfstæð saga um siglingu Auðar yfir hafið frá Skotlandi til Íslands.

Um bókina

Árið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls eftir dauða Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. Á augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum, ábyrg fyrir lífi ungra sonarbarna. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spýr eldi.

Á suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vígt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs.

Vilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um konuna sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands með sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Vígroði, hlutu fádæmagóðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Hér má hlusta á viðtal Margrétar Blöndal við Vilborgu um Auði Ketilsdóttur, í þættinum Stefnumót á Rás 1 18. desember 2017 og sjá hér fyrir neðan viðtal Egils Helgasonar við Vilborgu um Blóðuga jörð í bókmenntaþættinum Kiljunni á RÚV. Það er tekið á Krosshólaborg þar sem Landnáma segir að Auður djúpúðga hafi reist krossa, í grennd við býli sitt Hvamm í Dölum.

Kiljan 2017
Hér má sjá brot úr viðtali Egils Helgasonar í Kiljunni í okt. 2017 við Vilborgu um Auði djúðúðgu og glimrandi dóma gagnrýnenda þáttarins, Kolbrúnar Bergþórsdóttur og Sigurðar Valgeirssonar um Blóðuga jörð.

Dómar

Maríanna Clara Lúthersdóttir / Morgunblaðið

Rating: 4 out of 5.

Með Blóðugri jörð lýkur Vilborg Davíðsdóttir mögnuðum þríleik sínum um landnámskonuna Auði djúpúðgu … Saman byggja skáldskapurinn og óþrjótandi fróðleikur Vilborgar um tímabilið heillandi heim sem erfitt er að kveðja. Umfram allt eru það þó persónurnar, Auður og samferðafólk hennar, sem rísa upp úr þessum magnaða hafsjó fortíðar og lifa lengi með lesandanum.

Soffía Auður Birgisdóttir / Tímarit Máls og menningar

Höfundareinkenni Vilborgar eru sterk og felast ekki hvað síst í því hversu góð tök hún hefur á því að flétta saman grundvallarþræði frásagnar sinnar – svo sem lýsingar á persónum, umhverfi og náttúru – og hversu vandaður og fallegur ritstíll hennar er. … Segja má að stíll höfundar rísi einna hæst í myndrænum náttúrulýsingum sem lifna auðveldlega fyrir hugskotssjónum lesenda.

Andri Kristjánsson / Víðsjá, Rás 1

Persónur eru vel gerðar og það er ekki síst tilfinningaleg dýpt þeirra sem vekur áhuga lesandans og heldur honum föstum við lestur bókarinnar.

Arnþór Helgason

Blóðug jörð er hreint listaverk þar sem allt gengur upp. Fáir hafa ofið slíkt dýrmæti úr íslenskum þjóðararfi.